
Ísfisktogarinn Gullver NS landaði í heimahöfn á Seyðisfirði í gær að aflokinni fyrstu veiðiferð ársins. Heimasíðan ræddi við Þórhall Jónsson skipstjóra og spurði hvernig upphaf hins nýja árs hefði verið hjá þeim Gullversmönnum. “Við létum úr höfn 2. janúar og höfum verið að veiðum austur af landinu. Við vorum á Gerpisflaki, Tangaflaki, Seyðisfjarðardýpi og á Glettinganesflaki. Það var leiðindaveður allan tímann og alltaf einhver bölvaður skakstur. Það er frekar lítill fiskur á ferðinni og aflabrögðin ekkert sérstök. Við komum með um 80 tonn og var mestur hluti aflans þorskur. Ýsa var um 20 tonn af aflanum. Þetta er þokkalegasti fiskur sem veiðist en það mætti vera meira af honum,” sagði þórhallur.
Gullver hélt á ný til veiða síðdegis í gær.