Ísfisktogarinn Gullver NS kom til löndunar í Hafnarfirði í gærmorgun. Afli skipsins var 103 tonn, þar af voru 56 tonn karfi, 28 þorskur og 18 ufsi. Heimasíðan ræddi við Hjálmar Ólaf Bjarnason skipstjóra og spurði fyrst hve langur túrinn hefði verið. “Þetta var tæplega viku túr. Við fórum suður fyrir og síðan vestur fyrir land fyrst og fremst í þeim tilgangi að leita að karfa. Við hófum veiðar í Reynisdýpi og vorum þar eina nótt en þar fékkst ufsi. Síðan var haldið í Víkurálinn og fékkst karfi þar í og við Nætursöluna. Loks var haldið út á Dhornbanka en þar fengum við þorsk. Ég gæti trúað því að Gullver hafi aldrei komið á Dhornbankann áður. Við vorum nánast allan túrinn í ágætisveðri og við getum í reynd ekki kvartað undan neinu nema hvað að siglingarnar voru býsna langar,” segir Hjálmar Ólafur.
Gullver hélt á ný til veiða síðdegis í gær. Hjálmar Ólafur taldi víst að áfram yrði herjað á karfann.