Gullver NS kemur til löndunar. Ljósm. Ómar Bogason

Ísfisktogarinn Gullver NS kom til heimahafnar á Seyðisfirði og landaði þar rúmlega 100 tonnum sl. miðvikudag. Um er að ræða síðasta túr ársins hjá skipinu. Heimasíðan ræddi við Þórhall Jónsson skipstjóra og spurðist frétta. „Það er í reyndinni allt gott að frétta hjá okkur. Aflinn í veiðiferðinni var mest þorskur og ýsa. Um 70% af aflanum var þorskur. Við vorum mest að veiðum frá Gerpisflaki og norður á Glettinganesgrunn og ýsuna fengum við í Norðfjarðardýpinu. Þetta var sex daga túr og það var skítaveður fyrsta sólarhringinn en svo gekk veðrið niður og var gott eftir það. Þetta var síðasta löndunin á árinu og mannskapurinn er ábyggilega ánægður með að fá gott jólafrí. Ég held að allir hafi gott af því að slappa svolítið af fram yfir áramótin. Aflabrögðin á árinu hafa verið þokkaleg og ég held að menn geti verið ágætlega sáttir við árangurinn,“ sagði Þórhallur.