Gullver NS gerði góðan túr. Ljósm. Ómar Bogason

Ísfisktogarinn Gullver NS kom til heimahafnar á Seyðisfirði á sunnudagsmorgun að afloknum góðum túr. Aflinn var 117 tonn eða fullfermi. Meirihluti aflans eða 68 tonn var þorskur en síðan var 47 tonn af ýsu. Heimasíðan heyrði hljóðið í Þórhalli Jónssyni skipstjóra og lét hann vel af sér. ”Við vildum leggja áherslu á ýsuveiði en það er erfitt að fá hreina ýsu. Við byrjuðum innarlega á Glettinganesflakinu og þar fékkst nokkuð af ýsu. Vegna veðurs færðum við okkur utar en þar var meiri þorskur. Síðan var farið á Héraðsflóann og loks restað á Tangaflakinu í ágætis rjátli. Það er erfitt að vera á grunnu vatni í leiðindakalda eins og var drjúgan hluta túrsins, en ýsan heldur sig mest á grunnu vatni. Þá gefur ýsan sig helst í birtu en nú er stuttur dagur og erfitt að ná henni í myrkrinu,” sagði Þórhallur.

Landað var úr skipinu í gær og hélt það á ný til veiða í gærkvöldi.