Gullver NS kemur til hafnar. Ljósm. Ómar Bogason

Ísfisktogarinn Gullver NS landaði í heimahöfn á Seyðisfirði í gær að loknum tæplega sex sólarhringa túr. Heimasíðan heyrði hljóðið í Þórhalli Jónssyni skipstjóra. “Við lönduðum um 90 tonnum og aflinn var langmest ýsa. Það gekk betur að ná ýsunni en við reiknuðum með. Góð ýsuhol fengust yfir daginn en á nóttunni var þetta bölvað skrap. Aflinn fékkst langmest í Berufjarðarálnum og á Gauraslóðum. Það var þokkalegasta veður allan túrinn og í reyndinni betra en gera má ráð fyrir á þessum árstíma. Stefnt er að því að halda til veiða á ný í kvöld,” sagði Þórhallur.