Þannig mun húsið að Hafnarbraut 6 væntanlega líta út að breytingum loknum

Næstu daga munu hefjast allviðamiklar framkvæmdir við skrifstofuhús Síldarvinnslunnar að Hafnarbraut 6 í Neskaupstað. Byggð verður hæð ofan á húsið og lyftuhús vestan við það. Núverandi skrifstofuhúsnæði er orðið of lítið og mjög brýnt að stækka það umtalsvert.

Framkvæmdir við stækkun hússins munu hefjast á næstu dögum og er ráðgert að ljúka framkvæmdum utanvert í haust en innanhúsframkvæmdum verði sinnt í vetur. Aðalverktaki við framkvæmdirnar verður byggingafyrirtækið Nestak og ráðgert er að aðrir verktakar komi einnig úr Fjarðabyggð.

Starfsmenn skrifstofunnar munu flytja úr húsinu í lok þessa mánaðar og munu þeir fá starfsaðstöðu í fiskiðjuveri fyrirtækisins og í samvinnuhúsinu Múlanum á meðan framkvæmdirnar standa yfir.

Hafnarbraut 6 er áberandi hús í miðbæ Neskaupstaðar og mun hið nýja útlit þess setja mikinn svip á miðbæinn. Skrifstofur og verslun Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað (SÚN) eru á neðstu hæð hússins.