Bjarni Ólafsson AK í höfn í Neskaupstað. Ljósm. Smári Geirsson

Að undanförnu hefur töluvert af kolmunna verið fryst í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Það er Bjarni Ólafsson AK sem hefur komið með kolmunnann að landi. Í morgun kom Bjarni Ólafsson með 820 tonn til Neskaupstaðar og hófst vinnsla á aflanum strax í fiskiðjuverinu. Heimasíðan ræddi stuttlega við Theodór Haraldsson skipstjóra og spurði um veiðarnar. “Við fórum út um hádegi á föstudag og komum í morgun með 820 tonn. Það var haldið beint út í Rósagarð og þar voru tekin fjögur stutt hol. Þarna er fullt af fiski og mjög góð veiði. Við áttum að veiða í frystingu og þess vegna var dregið stutt og gætt að því að hráefnið yrði gott þegar í land væri komið. Við byrjuðum til dæmis á því að draga í tvo tíma og fengum þá 250 tonn. Kolmunninn sem fæst þarna er virkilega stór og fallegur og hlýtur að henta ágætlega til frystingar,” sagði Theodór.