Barði NK mun væntanlega halda til loðnuveiða í kvöld. Ljósm. Helgi Freyr Ólason

Frá því í upphafi síðustu viku hafa fimm skip leitað loðnu við landið og hefur loðna fundist á stóru svæði. Hafrannsóknastofnun sendi frá sér frétt um nýliðna helgi þar sem fram kom að nú yrði farið yfir gögnin sem aflað var í leitinni og í kjölfar þess birt ráðgjöf fyrir vertíðina. Gera má ráð fyrir að niðurstaða Hafrannsóknastofnunar liggi fyrir á næstu dögum. Óhætt er að segja að fréttir af loðnuleitinni hafi skapað verulega bjartsýni.

Tvö skip munu væntanlega halda til loðnuveiða frá Neskaupstað í kvöld. Það eru Barði NK og grænlenska skipið Polar Amaroq. Polar Amaroq kom með fyrstu loðnu vertíðarinnar til Neskaupstaðar sl. þriðjudag. Sú loðna var veidd í flotvörpu en nú hafa bæði grunnnót og djúpnót verið tekin um borð í skipið. Barði var eitt þeirra þriggja veiðsikipa sem tók þátt í loðnuleitinni og ræddi heimasíðan stuttlega við Theodór Haraldsson skipstjóra. Theodór var fyrst spurður um leitina. ”Við vorum að leita frá Kolbeinseyjarhrygg og suður í Reyðarfjarðardýpi. Leitin gekk vel en við urðum varir við mest af fiski austur af landinu. Barði er klár til trollveiða og nú er einnig verið að undirbúa skipið fyrir nótaveiðar. Þetta er allt virkilega áhugavert og það verður spennandi að fá fréttir af ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar síðar í vikunni,” sagði Theodór.