
Síldarvinnsluskipin Börkur NK og Beitir NK héldu til makrílveiða í gærkvöldi. Heimasíðan ræddi við skipstjórana og spurði þá hvernig þeim litist á upphaf makrílvertíðarinnar. Þeir Hjörvar Hjálmarsson skipstjóri á Berki og Tómas Kárason skipstjóri á Beiti sögðust vera spenntir fyrir vertíðinni. Hjá þeim kom fram að líklega myndu þeir fyrst skoða sig um innan íslenskrar lögsögu djúpt suðaustur af landinu. Kolmunnaveiðiskip hafa orðið vör við makríl á þeim slóðum og töldu skipstjórarnir sjálfsagt að kanna það svæði til að byrja með. “Ég reikna með að við byrjum á að skima eftir makríl í Litladýpi, Hvalbakshalli og Rósagarðinum og einnig á Þórsbanka og Verkamannabanka. Vonandi finnst fiskur á þessu svæði en reynslan hefur sýnt okkur að sá fiskur sem þarna veiðist er stór og fallegur. Síðan verður að hafa í huga að það er 200 mílum lengra að sigla út í Smugu en á þessi mið. Ef lítið finnst á miðunum innan lögsögunnar verður haldið rakleiðis í Smuguna,” sagði Hjörvar.