Þessa dagana er unnið af kappi við að setja jólasíldina í fötur.
Ljósm. Smári Geirsson

Nú er fólk farið að hugsa til jóla og þá fá aðdáendur jólasíldarinnar frá Síldarvinnslunni vatn í munninn. Síldarvinnslan hefur framleitt jólasíld í áratugi og eru miklar kröfur gerðar svo gæðin séu tryggð. Við framleiðsluna er notuð nýveidd norsk-íslensk síld sem flutt er að landi vel kæld. Það ríkir ávallt mikil gleði hjá starfsfólki fiskiðjuversins þegar unnið er að framleiðslu jólasíldarinnar enda fær fólkið að heyra að um sé að ræða einstaka gæðavöru og í reynd heimsins bestu síld.

Lengi stjórnuðu þeir Haraldur Jörgensen og Jón Gunnar Sigurjónsson framleiðslu jólasíldarinnar og byggir núverandi framleiðsla í öllum grundvallaratriðum á reynslu þeirra en að sjálfsögðu er nákvæm uppskrift leyndarmál þó unnt sé að greina frá framleiðsluferlinum í grófum dráttum. Nú eru það verkstjórarnir Oddur Einarsson og Eyðun Simonsen sem hafa umsjón með framleiðslunni í samráði við Geir Sigurpál Hlöðversson rekstrarstjóra og Karl Rúnar Róbertsson gæðastjóra.

Ásamt síldinni fer grænmeti og ýmsar kryddjurtir í föturnar til að skapa hið eina sanna jólasíldarbragð. Ljósm. Smári Geirsson

Framleiðslan í ár hófst þann 24. september. Þá var nýveidd síld flökuð og skorin í hæfilega bita. Bitarnir voru síðan lagðir í saltpækil í körum og þar voru þeir í ákveðinn tíma. Síðan voru þeir lagðir í edikslög í körum og loks í edikslög í tunnum. Í tunnunum eru bitarnir þar til þeir eru settir í fötur með sykurlegi og að því er einmitt unnið þessa dagana. Í föturnar fer einnig grænmeti og ýmsar kryddjurtir sem er nauðsynlegur þáttur í að skapa hið eina sanna jólasíldarbragð. Í öllu þessu ferli þarf að fylgja nákvæmum reglum varðandi tíma, magn og hreinlæti. Hér dugar ekki að slumpa, nákvæmnin skiptir öllu.

Fötur með jólasíld tilbúnar til afhendingar. Ljósm. Smári Geirsson

Síldarvinnslan framleiðir jólasíldina fyrir starfsfólk og þá sem tengjast fyrirtækinu en Hosurnar, líknarfélag starfsmanna Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað, fær síld í ákveðnu magni sem seld er til styrktar sjúkrahúsinu. Unnt er að panta síld hjá Hosunum á netfanginu og þá verður hinn svonefndi Hosumarkaður í Neskaupstað dagana 27. og 28. nóvember og þar verður unnt að kaupa jólasíld. Á höfuðborgarsvæðinu verður sú síld sem pöntuð hefur verið afhent miðvikudaginn 26. nóvember frá klukkan 16 – 18. Afhendingarstaður verður vörumóttaka Hafrannsóknastofnunar að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði. Það verða systurnar Erla Bjarný og Steina Gunnarsdætur sem annast afhendinguna þar.