Línuskipið Sighvatur GK veiddi vel í fyrsta túr ársins. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Línuskipið Sighvatur GK landaði 83 tonnum á Djúpavogi í gær. Heimasíðan ræddi við Aðalstein Rúnar Friðþjófsson skipstjóra og spurði hvernig veiðin hefði gengið. “Veiðin gekk vel. Þetta er í reynd súperstart á árinu 2026. Við fengum þessi 83 tonn í þremur lögnum. Við byrjuðum á að leggja í Breiðamerkurdýpinu og þar fengum við blöndu af þorski, löngu og ýsu. Síðan lögðum við tvisvar á Hálsunum við Sláturhúsið. Þar fengum við 25 tonn í fyrri lögninni og 30 í þeirri síðari. Þar var aflinn nánast til helminga þorskur og ýsa. Þetta var fallegasti fiskur, sérstaklega þorskurinn. Þetta var einungis fjögurra daga túr og við vorum kallaðir inn vegna þess að vinnslan þurfti á fiski að halda. Við erum sallaánægðir með þennan fyrsta túr á árinu og ég fæ ekki annað séð en að útlitið sé bara bjart,” sagði Aðalsteinn Rúnar.