Börkur NK kom til Neskaupstaðar í gærkvöldi með 1.550 tonn af íslenskri sumargotssíld og hófst vinnsla á aflanum strax í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Heimasíðan ræddi við Hjörvar Hjálmarsson skipstjóra og spurði hvernig veiðiferðin hefði gengið. “Hún gekk býsna vel. Við fengum aflann á 32 klukkustundum í Jökultungunni út af Snæfellsnesinu. Aflinn fékkst í þremur holum en dregið var í 6 – 8 tíma. Í fyrsta holinu fengust 500 tonn, 440 í öðru og 600 í því þriðja og síðasta. Það var fínt veður allan tímann og síldin er falleg Íslandssíld. Það má segja að þessi veiðiferð hafi gengið eins og í sögu. Ég geri ráð fyrir að vinnslu á þessum afla ljúki aðfaranótt fimmtudags og þá verður sennilega haldið rakleitt vestur fyrir land á ný,” segir Hjörvar.