Bergey VE í höfn í Neskaupstað. Ljósm. Smári Geirsson

Bergey VE landaði nánast fullfermi í Neskaupstað í gærmorgun. Heimasíðan ræddi við Ragnar Waage Pálmason skipstjóra og spurði hvernig veiðin hefði verið og hvar hefði verið veitt. “Sannast sagna er ekki mikið fjör í veiðinni um þessar mundir. Hjá togurum er víða afar rólegt en það hlýtur að breytast þegar haustar fyrir alvöru. Við veiddum mjög víða í veiðiferðinni. Byrjað var í Reynisdýpinu, síðan var haldið í Meðallandsbugtina og þaðan á Ingólfshöfða og í Breiðamerkurdýpi. Á þessum miðum var misjöfn veiði og yfirleitt heldur treg. Þá var haldið á ný á Ingólfshöfðann og síðan var stefnan tekin austur fyrir land. Þegar þangað var komið var byrjað við Hvalbakinn en við enduðum síðan Utanfótar og við Örvæntinguna. Aflinn var langmest þorskur en síðan var dálítið af ufsa og ýsu og fleiri tegundum,” sagði Ragnar Waage.

Bergey hélt til veiða á ný fljótlega eftir að löndun lauk.

Á sunnudag landaði Birtingur NK einnig í Neskaupstað. Aflinn var um 90 tonn. Hélt hann á ný til veiða í gær.