
Í gær var landað úr þremur ísfisktogurum í Neskaupstað. Fyrstur í röðinni var Birtingur NK en síðan kom röðin að Bergey VE og Vestmannaey VE. Afli Birtings var um 95 tonn en afli Vestmannaeyjaskipanna um 50 tonn hjá hvoru. Veiðidagar hjá Birtingi voru fimm talsins en Vestmannaeyjaskipin höfðu verið um þrjá sólarhringa á miðunum. Hjá öllum þremur skipunum var þorskur uppistaða aflans.
Einar Ólafur Ágústsson, skipstjóri á Birtingi, upplýsti að þeir hefðu hafið veiðar í Seyðisfjarðardýpinu en síðan fært sig á Gletting, suður á Fót og á Herðablaðið. Túrnum lauk svo í Reyðarfjarðardýpinu.
Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, sagði að veður hefði verið þokkalegt þessa veiðidaga og það væri góð tilbreyting frá þeirri tíð sem verið hefði að undanförnu. Afli Bergeyjar fékkst á Glettingi og í Reyðarfjarðardýpinu.
Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, var ekkert of sáttur við veiðina og sagði að sumir teldu hana vera óttalegt násarg. Sagði hann að þeir á Vestmannaey hefðu fengið aflann á Glettinganesflaki og Gerpisflaki.
Bergey og Vestmannaey héldu til veiða á ný skömmu eftir að löndun lauk en Birtingur heldur til veiða síðdegis í dag.