
Vísistogarinn Jóhanna Gísladóttir GK landaði góðum afla á Djúpavogi í gær. Megnið af aflanum var þorskur en eins var talsvert af ufsa. Einar Ólafur Ágústsson skipstjóri sagði að aflinn hafi fengist á Örvæntingunni sem er í Hvalbakshallinu. ”Þetta gekk alveg þokkalega og veðrið var bara ágætt,” sagði Einar Ólafur.
Jóhanna Gísladóttir hélt strax til veiða að löndun lokinni og var í morgun að veiðum utarlega í Héraðsflóanum.
Vestmannaeyjaskipin Bergey VE og Vestmannaey VE eru bæði að landa fullfermi í Neskaupstað í dag. Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergey, sagði að veitt hefði verið á Tangaflaki, Glettingi, í Seyðisfjarðardýpi og undir lokin á Glettinganestotunni. Megnið af aflanum er þorskur og ýsa. Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að þetta hefði verið rólegheitatúr. ”Við fengum ágætt af þorski en það hefði mátt vera meira af ýsunni. Túrinn var þrír og hálfur sólarhringur höfn í höfn. Byrjað var á Gerpisflaki, síðan farið á Tangaflak og loks á Glettinganesflak. Reyndar var líka tekið eitt hol í Seyðisfjarðardýpinu,” sagði Birgir Þór.
Bergey og Vestmannaey munu halda á ný til veiða strax að löndun lokinni.