Birtingur NK í Neskaupstað. Ljósm. Smári Geirsson

Ísfisktogararnir Birtingur, Vestmannaey og Bergey lönduðu allir í Neskaupstað, sunnudaginn 18. október. Skipin höfðu verið að veiðum úti fyrir Austurlandi en þurftu að stytta veiðiferðirnar vegna óhagstæðs veðurs.

Birtingur landaði 32 tonnum eftir aðeins tvo daga á veiðum. Aflinn var að mestu þorskur, eða 24 tonn, auk fjögurra tonna af ufsa og þriggja tonna af ýsu.

„Þetta varð mjög stuttur túr hjá okkur. Við náðum tveimur dögum og veiðin var ágæt áður en veðrið fór að versna og allur flotinn leitaði í land.“ segir Einar Ólafur, skipstjóri á Birtingi.

Vestmannaey hélt til veiða frá Vestmannaeyjum á fimmtudag og landaði um 31 tonni. Þar af voru 26 tonn af þorski og þrjú tonn af ýsu. Líkt og hjá hinum skipunum setti brælan strik í reikninginn og varð túrinn mun styttri en ella.

„Við byrjuðum að leita að fiski með suðurströndinni en enduðum við veiðar úti fyrir Austurlandi. Brælurnar koma nú nokkuð þétt og það er ljóst að veturinn er farinn að minna rækilega á sig,“ segir Birgir Þór, skipstjóri á Vestmannaey.

Bergey fór einnig frá Vestmannaeyjum á fimmtudag og landaði 38 tonnum. Aflinn var að mestu þorskur, eða 32 tonn, auk fjögurra tonna af ýsu.

„Túrinn varð stuttur vegna veðurs. Það fiskaðist ágætlega en við þurftum að hverfa frá. Við reiknum með að halda til veiða í dag og landa aftur í vikunni hér eystra,“ segir Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey.

Veðurútlitið næstu daga er ekki sérlega hagstætt og því óvíst hversu samfelldar veiðarnar verða. Það er óhætt að segja að nú sé kominn vetrarbragur á brælurnar úti fyrir Austurlandi, enda virðast þær ætla að koma í röðum um þessar mundir.