
Í desembermánuði sl. var gerð úttekt á jafnlaunakerfi Síldarvinnslunnar fyrir árið 2025. Úttektin náði einnig til Bergs – Hugins í Vestmannaeyjum. Það var vottunarfyrirtækið BSI sem annaðist úttektina. Jafnlaunakerfið á að tryggja að launamál viðkomandi fyrirtækis séu í samræmi við jafnlaunastaðalinn ÍST 85:2012 en samkvæmt staðlinum skulu fyrirtæki tryggja að launum sé háttað samkvæmt lögum um jafnan rétt kynjanna. Úttekt á jafnlaunakerfi Síldarvinnslunnar fór í fyrsta sinn fram árið 2018 og síðan hefur hún verið framkvæmd árlega þannig að þetta er í áttunda sinn sem slík úttekt er gerð.
Fram kom í úttektinni fyrir árir árið 2025 að óútskýrður launamunur innan fyrirtækisns væri 0,98% konum í hag. Hákon Ernuson starfsmannastjóri Síldarvinnslunnar segir að niðurstaða úttektarinnar komi ekki á óvart og sé hún til dæmis í góðu samræmi við úttekt fyrir árið 2024. “Samkvæmt starfsmanna- og jafnréttisstefnu fyrirtækisins á launastetning eingöngu að byggjast á skýrum málefnalegum forsendum og það er ávallt gott að fá staðfest að svo sé í reyndinni. Það kemur skýrt fram í niðurstöðu úttektarinnar að kynbundinn launamunur er ekki til staðar og jafnréttissjónarmiðunum er fylgt. Mikilvægt er að taka fram að launakerfi sjómanna er þess aðlis að þeir eru undanskildir þegar jafnlaunaúttekt er framkvæmd,” sagði Hákon.