
Krókaaflamarksbáturinn Fjölnir GK átti góðan janúarmánuð. Hann fór í 23 róðra í mánuðinum og það er mkið miðað við síðustu ár. Yfirleitt var glimrandi góð veiði hjá Fjölnismönnum og var aflinn 211 tonn í mánuðinum. Á Fjölni eru tvær áhafnir og eru þeir Kristinn Arnberg Kristinsson og Júlíus Magnús Sigurðsson skipstjórar. Hvor áhöfn er tvær vikur á sjó og síðan í fríi í tvær vikur. Heimasíðan ræddi við Kristinn Arnberg um aflabrögðin í janúar. “Það var yfirleitt glimrandi góð veiði þó svo að veður væri heldur leiðinlegt. Vegna veðursins gátum við lítið róið frá okkar heimahöfn í Grindavík og þurftum að flýja til Þorlákshafnar og síðan Sandgerðis og róa þaðan. Það er ekki oft sem hægt hefur verið að róa jafnmikið í janúar og nú var gert. Staðreyndin er líka sú að þessi janúarafli er mjög mikill því það er ekki oft sem aflinn hjá Fjölni hefur farið yfir 200 tonn í mánuði. Fiskurinn sem fékkst var góður. Aflinn var mest þorskur og hann var stór. Fyrri part mánaðarins fékkst líka talsvert af ýsu. Menn eru mjög ánægðir með þennan janúarmánuð og við strákarnir um borð erum hressir með útkomuna,” sagði Kristinn Arnberg.