
Barði NK kom þaðan með 1050 tonn af loðnu til Neskaupstaðar í gærmorgun. Börkur NK hélt vestur fyrir land og er reiknað með að hann hefji veiðar á loðnu til hrognavinnslu um eða upp úr helginni. Heimasíðan heyrði hljóðið í Þorkeli Péturssyni skipstjóra á Barða og spurði fyrst hvar hefði verið veitt. “Við köstuðum einungis einu sinni í túrnum og það var við Skaftárósa. Við fengum 855 tonn í þessu kasti og síðan fengum við 200 tonn frá Ásgrími Halldórssyni SF. Nú er verið að landa úr Beiti og við hefjum löndun þegar vinnslunni úr honum lýkur. Þar sem við vorum að veiðum var mikið að sjá af loðnu. Þetta voru stórar, fallegar og langar torfur. Þetta er það mesta sem ég hef séð á vertíðinni. Svo er þetta hin fínasta loðna. Í aflanum er hrygna um 40% og hrognafyllingin er um 18%. Þetta er semsagt ekta Japansloðna. Þarna á miðunum fyrir sunnan landið er gríðarlegur fjöldi hnúfubaka. Hvalnum fjölgar sífellt og ég veit ekki hvernig í ósköpunum þetta endar. Ég held menn verði að fara að ræða þessi hvalamál af mikilli alvöru, það er engin spurning,” sagði Þorkell.
Gert er ráð fyrir að þessi farmur Barða verði síðasti Japansloðnufarmur vertíðarinnar hjá Síldarvinnslunni. Þegar vinnslunni á loðnunni úr Barða lýkur verður allt gert tilbúið fyrir hrognavinnslu.