
TM Tryggingar hf. og Félag vélstjóra og málmtæknimanna veittu á sjómannadaginn viðurkenningu fyrir fyrirmyndar yfirvélstjórastörf og var það í þrítugasta og þriðja sinn sem það hefur verið gert. Sá sem verður fyrir valinu fær í hendur grip sem hlotið hefur nafnið Neistinn.
Við val á viðtakanda Neistans skal leggja til grundvallar ástand skoðunarskylds búnaðar um borð í viðkomandi skipi, ástand öryggis- og viðvörunarbúnaðar, rekstur vélbúnaðar og umgengni í vélarrúmum. Við valið er leitað umsagnar skoðunarstofa og flokkunarfélaga en mest af skoðunarskyldum búnaði um borð í skipi er á ábyrgð yfirvélstjórans. Tilgangur viðurkenningarinnar er að vekja athygli á hve þýðingarmikið og krefjandi starf yfirvélstjóra er og um leið að veita þeim sem skara fram úr viðurkenningu fyrir störf sín.
Neistann í ár hlaut Jóhann Pétur Gíslason yfirvélstjóri á Berki NK og var valið tilkynnt í sjómannadagsmessu í Neskaupstað sl. sunnudag. Jóhann lauk fjórða stigi vélstjórnarnáms í Vélskóla Íslands árið 1985 og sveinsprófi í vélvirkjun á vélaverkstæði Síldarvinnslunnar hf. árið 1989. Hann starfaði á vélaverkstæðinu á árunum 1985 og 1986 og einnig á árunum 1988 og 1989. Árið 1986 réðist hann sem vélstjóri á Beiti og sinnti því starfi til ársins 1988 en árið 1989 hóf hann að gegna starfi yfirvélstjóra á Bjarti NK sem hann sinnti til ársins 1998. Um mitt ár 1998 tók Jóhann við starfi yfirvélstjóra í nýju fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar og starfaði þar fram á mitt ár 2012 þegar hann réðist sem vélstjóri á Börk NK. Leiðin lá síðan um borð í Beiti NK þar sem hann var yfirvélstjóri á árunum 2017 til 2020. Árið 2020 hóf Jóhann að sinna eftirliti með smíði nýs Barkar ásamt Herði Erlendssyni samstarfsmanni sínum. Jóhann hefur ásamt Herði verið yfirvélstjóri á Berki frá því að skipið var tekið í notkun vorið 2021 en Hörður hefur nýlega látið af störfum.