Jóhanna Gísladóttir GK. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Ísfisktogarinn Jóhanna Gísladóttir GK landaði fullfermi af karfa í Grindavík í gær. Þetta var síðasta veiðiferð skipsins í eigu Vísis í Grindavík en Vísir hefur gert skipið út frá því í októbermánuði 2021 eða í um það bil fjögur og hálft ár. Skipstjóri í umræddum lokatúr var Smári Rúnar Hjálmtýsson og var hann ánægður með veiðina. “Við héldum beint á Melsekk og hittum þar á hörku karfaveiði. Skipið var fyllt á um það bil sólarhring þannig að þetta var stuttur og snarpur túr. Í reyndinni var alveg á mörkunum að það væri veiðiveður en þetta slapp fyrir horn. Að lokinni löndun var skipið þrifið hátt og lágt og veiðarfæri og annar búnaður settur í land. Nú hefur skipið verið sett á söluskrá. Allmargir úr áhöfn Jóhönnu Gísladóttur munu fara yfir á Birting NK en útgerð hans er að hefjast,” sagði Smári Rúnar.

Jóhanna Gísladóttir var smíðuð í Danmörku árið 1998. Skipið er 569 brúttótonn að stærð með 1.300 hestafla vél.