Fyrsti túr ársins gekk vel hjá Jóhönnu Gísladóttur GK. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Ísfisktogarinn Jóhanna Gísladóttir GK hélt til veiða frá heimahöfn í Grindavík þann 2. janúar sl. og landaði fullfermi í Bolungarvík í gær. Heimasíðan hafði samband við Einar Ólaf Ágústsson skipstjóra og innti hann frétta af þessum fyrsta túr ársins. “Þetta gekk alveg þokkalega og það var algjör blíða allan túrinn. Við byrjuðum að veiða á Reykjanesgrunni í von um að fá ufsa en þar fékkst afskaplega lítið. Þá færðum við okkur í Kolluál í von um að fá þorsk, en þar fékkst ekkert nema karfi. Því næst var haldið á Strandagrunn þar sem fékkst þorskur og ýsa og síðan var endað á Kögurgrunni. Það verður að segjast að þetta var þokkalegasti fyrsti túr á árinu og það gekk vel að veiða eftir að komið var út af Vestfjörðum. Vissulega var langt farið en þegar það skilar árangri er engin ástæða til að kvarta,” sagði Einar Ólafur.

Jóhanna Gísladóttir hélt til veiða á ný strax að löndun lokinni og í morgun var verið að veiðum í norðanverðum kantinum á Djúpálnum.