
Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson
Ísfisktogarinn Jóhanna Gísladóttir GK landaði í heimahöfn í Grindavík á fimmtudaginn og aftur í dag. Aflinn hefur að mestu verið karfi. Skipstjóri í báðum túrunum var Smári Rúnar Hjálmtýsson og ræddi heimasíðan við hann um aflabrögðin. „Í fyrri túrnum vorum við með karfa og þorsk og fékkst aflinn í Kolluálnum og á Jökultungunni. Í dag er verið að landa fullfermi eftir þrjá til fjóra daga að veiðum og er aflinn að mestu karfi. Við byrjuðum við Snæfellsnesið og síðan var farið í Kolluál og á Jökultunguna. Staðreyndin er sú að það er heldur erfitt að fá þorsk í trollið hér fyrir vestan landið núna þó hann veiðist vel bæði á línu og í net. Þorskurinn er dreifður og það hentar togurunum illa,“ sagði Smári Rúnar.
Jóhanna Gísladóttir mun halda á ný til veiða í dag.