Jóhanna Gísladóttir GK á leið á miðin. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Ísfisktogarinn Jóhanna Gísladóttir GK hefur verið að veiða karfa að undanförnu. Hún landaði 65 tonnum á Grundarfirði á föstudag og 48 tonnum í Hafnarfirði í gær. Einar Ólafur Ágústsson skipstjóri sagði að karfaveiðin hefði gengið þokkalega. “Í fyrri túrnum vorum við að veiðum í Víkurálnum og þetta nuddaðist ágætlega. Strax að lokinni löndun í Grundarfirði var haldið á ný til veiða. Þá var komin bræla í Víkurálnum og því var farið í Jökuldýpið. Þar fékkst einnig fínasti gullkarfi. Við höfum að undanförnu verið í ágætis karfaskorpu og það hefur bara gengið ágætlega. Í gær var síðan landað í Hafnarfirði að afloknum stuttum túr. Ég reikna með að við hvílum okkur dálítið á karfanum að sinni og hyggjum að öðru. Það verður veðrið sem ræður hvert verður haldið til veiða,” sagði Einar Ólafur.