Eins og áralöng hefð er fyrir hefur Síldarvinnslan og 9. bekkur Nesskóla samstarf um að halda jólaball fyrir börn í Neskaupstað. Ballið verður haldið í sal Nesskóla mánudaginn 29.desember kl. 16.30 og þar mun án efa ríkja mikil gleði eins og venjulega. Á ballið munu koma jólasveinar og þar verður boðið upp á piparkökur og mandarínur.