Jóhanna Gísladóttir GK kemur til löndunar. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Ísfisktogarinn Jóhanna Gísladóttir GK landaði fullfermi í Grindavík á sumardaginn fyrsta. Að þessu sinni var það karfi sem var á dagskránni hjá áhöfninni. Heimasíðan ræddi við Einar Ólaf Ágústsson skipstjóra og spurði hvernig hefði gengið í túrnum. ”Það má segja að allt hafi gengið sinn vanagang. Við byrjuðum að vísu að taka þrjú hol á Selvogsbankanum og fengum sáralítið þar. Þetta voru örfá kör, mest lýsa, langa og ýsa. Það var í sannleika sagt afar slök veiði þarna. Við færðum okkur á Melsekk og þar var hörku gullkarfaveiði. Við fylltum skipið á stuttum tíma þannig að við vorum einungis að veiðum í um tvo sólarhringa í túrnum. Það var ágætis veður í túrnum en við fengum þó smákalda á landleiðinni,” sagði Einar Ólafur.

Jóhanna Gísladóttir hélt til veiða á ný að aflokinni löndun um hádegi í gær.