Vestmannaey VE landaði fullfermi af karfa í Grindavík á sunnudag. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Vestmannaeyjatogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu báðir um helgina og í byrjun vikunnar. Vestmannaey landaði fullfermi af karfa í Grindavík á sunnudaginn og síðan blönduðum afla í Eyjum strax á mánudag. Bergey landaði fullfermi af blönduðum afla í Eyjum á þriðjudag. Heimasíðan ræddi stuttlega við skipstjórana um aflabrögðin.

Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að karfaveiðin hefði gengið vel. ”Við veiddum karfann í Sparisjóðnum í Skerjadýpinu og þar fékkst stór og flottur karfi. Að lokinni löndun fórum við og tókum þrjú hol á Pétursey og Vík. Síðan var haldið til Eyja og landað þar 23 tonnum af blönduðum afla,” sagði Egill Guðni.

Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergey, sagði að aflinn í veiðiferð þeirra hefði verið mjög blandaður. ”Þetta voru mest fjórar tegundir og var nánast jafnt af hverri þeirra. Þetta voru steinbítur, ufsi, ýsa og koli. Við hófum veiðar á Öræfagrunni en síðan var haldið á Mýragrunn, þaðan á Skerbleyðuna og loks á Pétursey og Vík. Veður var gott mest allan tímann en undir lokin jókst vindur og var 15 -18 metrar. Þetta var ágætur blandaður túr og við kvörtum ekki,” sagði Ragnar Waage.

Bæði skip halda til veiða á ný í dag.