
Línuskipið Páll Jónsson GK landaði í heimahöfn í Grindavík á mánudaginn að lokinni vel heppnaðri veiðiferð. Heimasíðan ræddi við Benedikt Jónsson skipstjóra og bað hann að lýsa veiðiferðinni. “Þessi veiðiferð gekk mjög vel. Það var hörkufiskirí og mjög gott veður fyrir utan fyrsta daginn. Aflinn fékkst í fimm lögnum. Fyrst var lagt á Bervíkinni við Snæfellsnesið og þar fengust 20 tonn. Þá var haldið út í Kolluál og þar teknar fjórar lagnir. Aflinn í þeim var frá 22 og upp í 34 tonn. Niðurstaðan var kjaftfullt skip eða 135 tonn. Mest fékkst af þorski eða 92 tonn en síðan voru þetta 13 tonn af löngu og 11 af ýsu auk dálítils karfa. Þetta gekk afar vel. Þegar um er að ræða gott skip, góða áhöfn, gott veður og góða útgerð þá gengur allt vel,” sagði Benedikt.
Línuskipið Sighvatur GK landaði síðan í Grindavík í dag og slegið var á þráðinn til Aðalsteins Rúnars Friðþjófssonar skipstjóra. ”Við erum að landa 125 tonnum sem er fullfermi. Meirihluti aflans er þorskur en síðan er nokkuð af ýsu. Við byrjuðum á að taka eina lögn á Akraneshrygg en síðan þurftum við að skjótast til Akraness til að láta lagfæra ljósavél. Að því loknu unnum við okkur út Faxaflóann í Jökuldýpið og það aflaðist virkilega vel. Samtals voru þetta fimm lagnir í túrnum og það er ekki hægt að vera annað en ánægður með aflabrögðin,” sagði Aðalsteinn Rúnar.