
Ljósm. Björn Steinbekk
Þrjú Síldarvinnsluskip hafa verið að kolmunnaveiðum í Rósagarðinum að undanförnu. Börkur NK kom til löndunar í gær og Beitir NK er væntanlegur í kvöld. Bjarni Ólafsson AK mun síðan koma í kjölfar Beitis. Að sögn Hafþórs Eiríkssonar, verksmiðjustjóra fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, er kolmunninn úrvalshráefni til vinnslu.
Heimasíðan heyrði hljóðið í Herbert Jónssyni skipstjóra á Berki og spurði hann hvernig veiðin hefði gengið. „Við komum með 2.500 tonn og fékkst aflinn í 10 holum. Holin voru misjafnlega löng eða frá fjórum tímum og upp í eina tuttugu. Afli í holi var líka mjög breytilegur eða frá 500 tonnum og niður í 100 tonn. Segja má að þetta hafi verið þokkalegasta nudd. Það gerði á okkur heljarmikla brælu og það hafði auðvitað sín áhrif á túrinn. Það hefur líka verið mikil ferð á fiskinum sem veldur dálitlum vandræðum, en vissulega voru fínustu aflasprettir inn á milli. Það sem var hins vegar mest spennandi í þessum kolmunnatúr var makríll. Við urðum nefnilega varir við töluverðan makríl við yfirborðið og það sama gildir um önnur skip á kolmunnamiðunum. Nú erum við að taka kolmunnaúthaldið í land og förum síðan að græja okkur á makrílinn. Það er stefnt að því að hefja makrílveiðar eftir næstu helgi og auðvitað verður það spennandi,“ sagði Herbert.