
Börkur NK hélt til kolmunnaveiða í íslenskri lögsögu í gær og ráðgert er að Beitir NK haldi einnig fljótlega til veiða í kjölfar hans. Heimasíðan ræddi við Herbert Jónsson skipstjóra á Berki og spurði fyrst á hvaða mið væri stefnt. “Við höldum beinustu leið út í Rósagarð og munum byrja að leita þar og á Verkamannabankanum. Einu sinni var kolmunni veiddur á þessum slóðum í júlímánuði en það var áður en menn hófu makrílveiðar af krafti. Á Stóra Berki var farið þarna í júlí fyrir tuttugu árum eða svo og þá var kolmunni þarna á ferðinni. Það tók okkur þá yfirleitt nokkra daga að fá í skipið, gjarnan 5 til 7 daga. Þá vorum við auðvitað með minni skip og minni veiðaræri en nú tíðkast. Það verður spennandi að prófa þetta núna í júlímánuði en á undanförnum árum hefur oft verið þokkalegasta kolmunnaveiði á þessum slóðum á haustin. Vegna þess hve makrílkvótinn er lítill þetta árið gefst okkur ráðrúm til að kanna hvort kolmunni heldur sig á þessum miðum í júlí eins og hann gerði á fyrri tíð. Væntanlega verður ekki farið að hyggja að makrílnum fyrr en komið verður fram í ágúst,” sagði Herbert.