Gott kolmunnahol hjá Barða NK. Ljósm. Helgi Freyr Ólason

Síldarvinnsluskipin Barði NK, Beitir NK og Börkur NK munu halda til kolmunnaveiða í dag. Heimasíðan ræddi við Theodór Haraldsson skipstjóra á Barða og spurði hvernig mönnum litist á veiðarnar. “Mér líst vel á þær. Við munum halda til veiða um hádegi í dag og verðum væntanlega komnir á miðin að lokinni viðkomu í Færeyjum annað kvöld. Veiðin mun eiga sér stað á hinu svonefnda gráa svæði syðst í færeysku lögsögunni en þangað er fiskurinn að ganga úr írsku lögsögunni. Síðustu árin hefur þarna hafist kraftveiði um þetta leyti og hafa skipin verið að fá allt upp í 100 tonn á tímann. Í fyrra hófst veiðin þarna 6. – 10. apríl og gekk afar vel. Ég held að íslensku kolmunnaskipin séu yfirleitt að leggja af stað á miðin um þetta leyti og menn eigi von á góðri veiði,” sagði Theodór.

Í fyrra barst fyrsti kolmunnafarmurinn á þessum árstíma til Neskaupstaðar þann 8. apríl en þá kom Börkur NK þangað með fullfermi eða 3.250 tonn sem fengust í sex holum á tveimur og hálfum sólarhring á gráa svæðinu.