Börkur NK að veiðum. Ljósm. Helgi Freyr Ólason

Börkur NK hélt til kolmunnaveiða á sunnudaginn og vart er annað hægt að segja en að veiðarnar byrji vel. Nú fyrir hádegið var skipið búið að taka tvö hol og var aflinn um 860 tonn. Heimasíðan hringdi í Herbert Jónsson skipstjóra og spurði frétta. “Við látum bara vel af okkur. Við höfum verið að toga á Ölæðinu sem er nyrst í Rósagarðinum. Í fyrra holinu fengum við ein 400 tonn eftir að hafa togað í 16 tíma og í seinna holinu 460 tonn eftir 14 tíma. Það er eitthvað líf að sjá hérna og við erum bara ánægðir með þessa byrjun. Kolmunninn sem fæst hérna er hinn fallegasti. Hann er í stærri kantinum og vel feitur þannig að hann ætti að vera úrvalshráefni fyrir fiskimjölsverksmiðjur. Menn fylgjast spenntir með því hvernig gengur hjá okkur en við erum hér einskipa. Það eru fleiri skip væntanleg á miðin og þá kemur betur í ljós hve víða má finna fisk á þessu svæði,” sagði Herbert.