
Sl. fimmtudag var talið að verið væri að ganga frá samningum á milli íslenskra og færeyskra stjórnvalda um kolmunnaveiði íslenskra skipa í færeyskri lögsögu. Nokkur íslensk skip lögðu þá af stað á kolmunnamiðin í þeim tilgangi að hefja veiðar strax og unnt væri að lokinni samningsgerðinni. Á meðal þessara skipa voru Síldarvinnsluskipin Beitir NK og Börkur NK. Í ljós kom á föstudag að eitthvað myndi dragast að ganga frá samningunum og sneru þá Beitir og Börkur til heimahafnar í Neskaupstað en ýmis önnur íslensk skip leituðu hafnar í Færeyjum.
Nýjustu fréttir eru þær að samningsgerð sé lokið og geti kolmunnaveiðin hafist fljótlega. Beitir og Börkur létu á ný úr höfn í Neskaupstað í morgun áleiðis á kolmunnamiðin í færeyskri lögsögu.