Barði NK kom til heimahafnar með síðasta kolmunnafarm ársins sl. föstudag. Ljósm. Guðlaugur Björn Birgisson

Barði NK kom til Neskaupstaðar á föstudag með 680 tonn af kolmunna. Landað var úr skipinu á laugardag. Þar með er kolmunnaveiðum Síldarvinnsluskipa lokið í ár. Heimasíðan ræddi við Þorkel Pétursson skipstjóra í morgun. “Við fengum þennan afla í tveimur holum suðaustur af Færeyjum en síðan skall á algjört skítviðri. Veðrið leiddi til þess að við vorum kallaðir inn til löndunar enda var spáin ekki gæfuleg. Nú er verið að þrífa skipið hátt og lágt fyrir jólin og síðan er jólafrí framundan. Áður en haldið verður í fríið mun fara fram árleg búnaðarskoðun á skipinu, en þá verður meðal annars farið yfir slökkvitæki, björgunarbúnað og annan búnað sem ávallt verður að vera í fullkomnu lagi,” sagði Þorkell.