
Beitir NK kom til hafnar í Neskaupstað í morgun með 2.720 tonn af kolmunna sem fékkst í færeyskri lögsögu. Þar með er kolmunnaveiðum Síldarvinnsluskipa lokið að sinni. Barði NK kom með 2.100 tonn til heimahafnar sl. þriðjudag og Börkur NK kom með 3.200 tonn á miðvikudaginn. Heimasíðan heyrði stuttlega hljóðið í skipstjórum skipanna.
Þorkell Pétursson, skipstjóri á Barða, var mjög ánægður með veiðina að undanförnu. “Við hófum veiðar í þessarri veiðitörn snemma í apríl og þetta var fjórði túrinn. Veiðarnar hafa gengið vel. Nú í síðasta túrnum var veitt með skilju í Ræsinu við Færeyjabankann en það er talsvert norðar en áður. Að þessu sinni fékkst aflinn í sex holum. Dregið var í sex til ellefu tíma og aflinn í hverju holi var frá 350 – 450 tonn. Í reyndinni hefur kolmunnaveiðin verið afar góð og það er svo sannarlega gaman þegar vel veiðist. Nú liggur fyrir að sótthreinsa lestar og þrífa allt skipið en síðan verður farið í vélarupptekt,” sagði Þorkell.
Hjörvar Hjálmarsson, skipstjóri á Berki, sagði að túrinn hefði gengið vel. ”Við vorum innan við þrjá sólarhringa að fylla skipið og það telst afar gott. Aflinn fékkst í sjö holum á skiljusvæði. Dregið var í fjóra til tíu tíma og afli í holi var á bilinu 360 – 580 tonn. Fiskurinn er á norðurleið í ætisleit og vonandi endar hann í Rósagarðinum í íslenskri lögsögu,” sagði Hjörvar.
Heimasíðan hafði samband við Ólaf Gunnar Guðnason skipstjóra á Beiti þegar komið var til hafnar í morgun. Hann sagði að verulega hefði dregið úr veiðinni síðustu dagana. ”Þegar fiskurinn gengur norður eftir dreifir hann sér og þá verður veiðin bölvað sarg. Við fengum aflann í tíu holum og var dregið í tuttugu tíma eða svo. Aflinn var 200 – 300 tonn í holi. Þetta er í reynd hefðbundin þróun veiðanna í færeysku lögsögunni á vorin. Annars geta menn ekki verið annað en mjög ánægðir með kolmunnaveiðarnar að undanförnu,” sagði Ólafur Gunnar.