
Ljósm. Smári Geirsson
Börkur NK kom til Neskaupstaðar í gærkvöldi með 3.200 tonn af kolmunna. Kolmunninn var veiddur suður og suðaustur af Færeyjum. Heimasíðan ræddi við Herbert Jónsson skipstjóra en hann var að fara sinn fyrsta túr í skipstjórastólnum á Berki. Herbert var áður stýrimaður á Beiti NK en hefur verið á Síldarvinnsluskipum frá árinu 1989. Veiðiferðin gekk vel að sögn Herberts. “Þetta gekk ágætlega. Við fengum aflann í sjö holum. Í stysta holinu fengust 170 tonn en síðan var aflinn gjarnan á milli 400 og 500 tonn. Í stærsta holinu voru 610 tonn,” sagði Herbert.
Beitir NK er á landleið með 2.600 tonn af kolmunna og er væntanlegur til heimahafnar síðdegis í dag. Ólafur Gunnar Guðnason skipstjóri var ágætlega sáttur við veiðiferðina. ”Við vorum að veiðum alveg við línuna á milli Færeyja og Hjaltlandseyja og það gekk vel að fiska. Aflinn fékkst í sjö holum og þau gáfu frá 200 og upp í 500 tonn. Það var ágætis veður þar til alveg undir lokin og auðvitað skiptir veðrið miklu máli við þessar veiðar eins og aðrar,” sagði Ólafur Gunnar.
Hafþór Eiríksson, rekstrarstjóri fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar, sagði að sér litist vel á kolmunnann sem nú berst til vinnslu. ”Þetta er fínasta hráefni og verksmiðjan fer vel af stað. Ég hef ekki séð fitumælingar ennþá en fiskurinn á að vera þokkalega feitur á þessum árstíma. Ég reikna með að skipin haldi aftur til kolmunnaveiða í færeyskri lögsögu þegar löndun lýkur,” sagði Hafþór.