
Ljósm. Oddur Einarsson
Í gær var frystur kolmunni í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað en yfirleitt fer kolmunninn til framleiðslu á mjöli og lýsi. Alls voru fryst um 200 tonn úr farmi Bjarna Ólafssonar AK en Bjarni kom til löndunar á þriðjudag með 950 tonn sem fengust á Þórsbankanum.
Heimasíðan ræddi við þá Geir Sigurpál Hlöðversson rekstrarstjóra fiskiðjuversins og Odd Einarsson yfirverkstjóra og spurði þá hvernig kolmunnavinnslan hefði gengið. Fram kom hjá þeim að vinnslan hefði gengið vel. Engin framleiðslustarfsemi hefur verið í fiskiðjuverinu frá því í marsmánuði en unnið hefur verið að breytingum og umbótum á búnaði. Þeir Geir Sigurpáll og Oddur sögðu að mjög gott hefði verið að hefja vinnslu nú og reyna hluta af hinum nýja búnaði áður en móttaka á makríl hefst. Fram kom hjá þeim að kolmunninn sem unninn var hefði verið úrvalshráefni. Fiskurinn hefði verið hinn fallegasti enda veiddur á nálægum miðum og vel kældur um borð í skipinu.