Barði NK kom með kolmunna til löndunar í gærkvöldi. Ljósm. Smári Geirsson

Barði NK kom til Neskaupstaðar í gærkvöldi með tæp 1.700 tonn af kolmunna. Vinnsla á aflanum hófst í fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar í morgun. Heimasíðan ræddi við Hafþór Eiríksson verksmiðjustjóra og spurði hann um kolmunnavinnsluna að undanförnu. “Kolmunnaveiðin hefur gengið afar vel og kolmunninn hefur reynst vera gott hráefni. Fiskurinn er vel haldinn og bæði mjöl og lýsi sem unnið er úr honum er gæðavara. Kolmunnaveiðin hófst seint í ágústmánuði í Hvalbakshalli og í Rósagrðinum og hefur gengið vel. Það er fyrst að hægja á veiðinni núna og líklega verður gert hlé á henni. Það má ekki gleyma því hve mikilvægt er að veiði innan íslenskrar lögsögu eigi sér stað því það þarf að semja um nýtingu sameiginlegra stofna í Norður-Atlantshafinu og kolmunninn er einn af þeim stofnum. Frá því að veiðar hófust í ágúst hafa tæplega 19.000 tonn af kolmunna borist hingað til Neskaupstaðar og er það meira en undanfarin ár á þessum árstíma. Rétt er að nefna að þegar veiðin hófst í ágúst var kolmunni frystur í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar en slík vinnsla hefur ekki farið fram hér síðan 2012,” sagði Hafþór.

Þorkell Pétursson, skipstjóri á Barða, sagði að aflinn í veiðiferðinni hefði fengist í sjö holum en það væri að hægjast á veiðinni. ”Það var erfitt veður fyrri hluta túrsins og í Rósagarðinum voru miklir straumar. Þarna voru fáein færeysk og íslensk skip þegar við komum út en undir lokin vorum við einir á miðunum. Kolmunnaveiðin þarna hefur gengið vel að undanförnu og menn eru ánægðir með árangurinn,” sagði Þorkell.