Kolmunna dælt um borð í Beiti NK í Rósagarðinum. Ljósm. Sindri Karl Sigurðsson

Kolmunninn sem barst til vinnslu í fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar í Neskaupstað um helgina reyndist vera úrvalshráefni til vinnslu. Sindri Karl Sigurðsson gæðastjóri fór í veiðiferð með Beiti NK og var ánægður með hvernig gekk að veiða og eins taldi hann fiskinn henta vel til vinnslu. Hafþór Eiríksson, versmiðjustjóri fiskimjölsverksmiðjunnar, tók undir með Sindra hvað gæði hráefnisins varðar. “Þessi kolmunni er alveg topphráefni. Við erum búnir að vinna þau 4.000 tonn sem bárust til okkar um helgina og það gekk eins og í sögu. Nú erum við að þrífa verksmiðjuna að vinnslu lokinni. Fiskurinn er vel haldinn og hann er enn að fitna á þessum tíma ársins. Við fáum lýsi úr þessum fiski sem við fáum ekki úr kolmunna sem veiddur er apríl og maí. Þá er mjölið sem fæst algjört gæðamjöl þannig að þetta verður vart betra. Nú er bara að vona að veiðin verði þokkaleg áfram. Það skiptir miklu máli að veitt skuli vera í íslenskri lögsögu og auðvitað er þægilegt að skipin sæki aflann í Rósagarðinn sem er ekki svo langt undan. Við hér í verksmiðjunni erum býsna hressir og þetta byrjar bara vel,” sagði Hafþór.