Bergey VE siglir inn Norðfjörð í morgunroðanum. Ljósm. Helgi Freyr Ólason

Vestmannaeyjaskipin Vestmannaey VE og Bergey VE komu til löndunar í Neskaupstað snemma í morgun. Bergey var með rúm 50 tonn og Vestmannaey með svipaðan afla. Skipin lönduðu síðast sl. sunnudag þannig að það var ekki um langa veiðiferð að ræða hjá þeim.

Heimasíðan heyrði hljóðið í Jóni Valgeirssyni skipstjóra á Bergey og spurði hvernig túrinn hefði gengið. “Það var bræludrulla allan tímann. Við byrjuðum á að keyra norður á Gletting og tókum þar eitt hol. Síðan var haldið á Litlagrunn og Vopnafjarðargrunn og þar var þokkalegt kropp. Við enduðum síðan á Glettinganesgrunni. Aflinn var langmest þorskur. Við komum inn í morgunroðanum og það verður haldið til veiða á ný í kvöld,” sagði Jón.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að þeir hefðu verið á sama róli og Bergey. Hundleiðinleg bræla hefði einkennt túrinn og aflinn nánast alfarið þorskur.