
Kristinn V. Jóhannsson, fyrrverandi stjórnarformaður Síldarvinnslunnar, er látinn. Hann lést 3. júlí síðastliðinn á heimili sínu í Reykjavík. Kristinn átti sæti í stjórn Síldarvinnslunnar á árunum 1983 – 2005 og var formaður stjórnarinnar á árunum 1984 – 2003. Hann sinnti stjórnarstörfum í Síldarvinnslunni af einstakri samviskusemi og dugnaði og átti farsælt og gott samstarf við aðra stjórnarmenn og stjórnendur fyrirtækisins.
Kristinn fæddist í Neskaupstað þann 28. ágúst árið 1934 og ólst þar upp. Hann hélt til náms í menntaskóla og háskóla en á námsárunum lagði hann stund á ýmis sumarstörf og þá helst sjómennsku. Þegar náminu lauk fluttist hann fljótlega á sínar gömlu heimaslóðir ásamt Báru Jóhannsdóttur eiginkonu sinni. Eftir að heim var komið sinnti hann kennslustörfum við Gagnfræðaskólann í Neskaupstað en árið 1971 var hann ráðinn skólastjóri Iðnskóla Austurlands og því starfi gegndi hann í áratug. Árið 1981 tók Kristinn við starfi framkvæmdastjóra Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað og var félagið starfsvettvangur hans allt til ársins 2005.
Auk áðurnefndra starfa sinnti Kristinn félagsmálum í Neskaupstað og má meðal annars nefna að hann var formaður Íþróttafélagsins Þróttar á árunum 1964 – 1966. Ferill hans á sviði bæjarmála er eftirtektarverður. Kristinn átti sæti í bæjarstjórn Neskaupstaðar á árunum 1966 – 1990. Hann var varaforseti bæjarstjórnarinnar á árunum 1966 – 1974 og síðan forseti á árunum 1974 – 1990. Naut Kristinn mikils trausts sem sveitarstjórnarmaður og voru honum falin margvísleg verkefni á vettvangi sveitarsjórnarmála.
Bára,eiginkona Kristins, lést árið 2006 en nokkrum árum síðar hóf hann sambúð með Katrínu Oddsteinsdóttur frá Stykkishólmi. Þau Kristinn og Katrín dvöldu ýmist í Neskaupstað eða Stykkishólmi. Katrín lést árið 2024 og eftir það bjó Kristinn í Reykjavík.

Síldarvinnslan vottar öllum aðstandendum Kristins innilega samúð vegna fráfalls hans. Það eru menn eins og Kristinn sem hafa mótað Síldarvinnsluna og stendur fyrirtækið ávallt í þakkarskuld við þá. Drjúgan hluta þess tíma sem Kristinn sat í stól stjórnarformanns Síldarvinnslunnar glímdi fyrirtækið við alvarlegan vanda, en farsællega tókst að vinna á honum og eftir stóð það öfluga fyrirtæki sem nú starfar. Megi minningin um Kristinn V. Jóhannsson lengi lifa.
Útför fer fram frá Bústaðakirkju í Reykjavík fimmtudaginn 16. júlí kl. 15. Kveðjuathöfn og greftrun fer fram mánudaginn 27. júlí frá Norðfjarðarkirkju kl. 13.