
Kristinn V., fyrrverandi stjórnarformaður Sildarvinnslunnar hf., er látinn. Hann sat í stjórn félagsins frá árinu 1983 til ársins 2005, þar af lengst af sem stjórnarformaður. Þegar Kristinn tók við stjórnarformennsku í félaginu voru miklir umbrotatímar í íslenskum sjávarútvegi. Á árinu sem Kristinn settist í stjórn fyrirtækisins nam verðbólga á Íslandi 83%. Spurningin um hvernig ætti að ná stjórn á veiðum, tilkoma aflamarkskerfisins árið 1984 og svo framsal aflaheimilda 1991 voru meðal málefna sem þurfti að fást við.
Staða Síldarvinnslunnar, eins og margra annarra félaga, var veik og mjög tvísýn á þessum árum, en Kristinn leiddi stjórn félagsins og félagið í gegnum þessa umbrotatíma. Þannig segir Finnbogi Jónsson, sem tók við starfi forstjóra félagsins 1986, frá því að á þessum árum hafi þurft að fara vikulega í bankann og slá lán til að greiða laun. Dagblöðin voru uppfull af fréttum um bága stöðu sjávarútvegsins og var Síldarvinnslan oft nefnd í því samhengi.
Kristinn var borinn og barnfæddur Norðfirðingur og leiddi hóp heimamanna í stjórninni í gegnum þessa tíma. Segja má að lagður hafi verið mikilvægur grunnur að framtíðarstefnu félagsins á þessum erfiðu tímum. Fyrir utan forystuhlutverk í stjórn Síldarvinnslunnar sat Kristinn í bæjarstjórn Neskaupstaðar í áratugi sem forseti bæjarstjórnar og var alla tíð mjög virkur í félagsmálum. Kristinn skildi að hagsmunir og velgengni atvinnulífs væri nauðsynlegt góðu samfélagi.
Reynsla hans og það traust sem hann ávann sér í samfélaginu í Neskaupstað á vettvangi sveitarstjórnarmála skipti miklu máli á þeim árum sem allt var undir og fyrirtækið þurfti að berjast fyrir tilveru sinni. Þarna skipti sköpum að fá áheyrn og vinna traust í pólitíkinni og bankakerfinu. Kristinn var fylginn sér og hafði óbilandi trú á fyrirtækinu og starfsfólki þess, og vann ávallt þétt með stjórnendum félagsins.
Kristinn var ætíð réttsýnn og laginn þegar kom að samningamálum. Oft skiptu þessir hæfileikar hans máli þegar þurfti að taka erfiðar ákvarðanir og finna lausnir sem allir gátu sætt sig við. Skilningur hans á rekstri fyrirtækisins var mikill og honum var ljóst að framtíð félagsins byggði stundum á erfiðum ákvörðunum. Hann var framsýnn í ákvörðunum og opinn fyrir uppbyggingu félagsins.
Kristinn var líka gleðimaður sem gott var að starfa með og kunni líka að gera sér glaðan dag þegar tilefni var til. Hann var góður ræðumaður sem naut sín vel á aðalfundum félagsins og við önnur tilefni.
Þó Kristinn léti af stjórnarstörfum sýndi hann alla tíð mikinn áhuga á að fylgjast með framgangi félagsins.
Stjórn og starfsfólk Síldarvinnslunnar hf. sendir aðstandendum samúðarkveðjur.
Þorsteinn Már Baldvinsson
Gunnþór Ingvason