Línuskipið Sighvatur GK landaði fullfermi í heimahöfn í Grindavík í gær.
Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa bæði landað í þessari viku. Páll Jónsson landaði 85 tonnum á Siglufirði á mánudag og Sighvatur landaði fullfermi eða um 130 tonnum í heimahöfn í Grindavík í gær. Heimasíðan ræddi við skipstjórana og fékk upplýsingar um gang veiðanna.

Benedikt Jónsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, sagði að þeir hefðu farið í ýsuleiðangur. “Við fórum norður fyrir og byrjuðum á tveimur lögnum í Djúpálnum. Þar urðum við ekki varir við mikla ýsu. Þá færðum við okkur austur á Skagagrunn og þar voru teknar fjórar lagnir. Við byrjuðum þar að leggja á 80 – 90 föðmum og enduðum á 40 – 50 föðmum. Þarna fékkst mest þorskur en ýsan virðist alls ekki komin á þessar slóðir enn. Það var sjálfsagt að kanna hvort ýsan væri búin að skila sér á þessi mið en niðurstaðan er skýr; hún er ekki komin enn, en hún á örugglega eftir að láta sjá sig þarna. Annars var þetta tíðindalítill túr og veðrið var þokkalegt þó svo við fengjum kaldaskít á leiðinni norður fyrir landið. Meirihluti aflans í þessum ýsuleiðangri var semsagt þorskur því ýsan lætur bíða eftir sér. Að lokinni löndun á Siglufirði var strax haldið til veiða á ný og stefnan tekin austur fyrir land,” sagði Benedikt.

Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson, skipstjóri á Sighvati, var ánægður með veiðiferðina. ”Við vorum að veiðum fyrir austan og þetta var með betri túrum. Við tókum þrjár og hálfa lögn í Héraðsflóadýpinu og síðan var lagður stubbur eða 7.000 krókar í Norðfjarðardýpi til að fylla. Í veiðiferðinni fengum við yfir eitt kg. á krók og það er býsna gott. Þarna fékkst virkilega góður og fallegur þorskur. Meðalþyngd er um fjögur kg. þannig að hann hentar afar vel í vinnsluna. Fiskurinn er í miklu æti þarna fyrir austan enda allt fullt af síld á miðunum. Í þessum túr fengum við líka gott veður en veðrið hefur talsvert verið að stríða okkur upp á síðkastið. Hér um borð eru menn alsælir með þennan túr og við getum varla kvartað yfir neinu,” sagði Aðalsteinn Rúnar.