
Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, lönduðu bæði í Grindavík í gær að afloknum páskatúrum. Heimasíðan ræddi við skipstjórana sem létu þokkalega vel af sér. Benedikt Jónsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, sagði að þar um borð væru menn ágætlega sáttir við túrinn. “Aflinn var rétt rúmlega 100 tonn og þetta var ágætis millifiskur. Við vorum nánast allan túrinn á Jökultungunni og reyndar yst á henni. Alls var lagt þar sex sinnum og síðan var reyndar tekinn smástubbur á Grjóthryggnum í lokin. Það var smá kaldi í upphafi túrs en síðan var bara blíða,” sagði Benedikt.
Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson, skipstjóri á Sighvati, var einnig sáttur við páskatúrinn. ”Aflinn hjá okkur var um 75 tonn. Helmingur aflans var þorskur en síðan var þetta blandað; langa, keila, ýsa og karfi. Við vorum í Kolluálnum og síðan á Jökultungu og Jökulbanka. Þetta voru fimm og hálf lögn í túrnum en hann var styttri en venjulega vegna þess að enginn fiskur verður unninn hjá Vísi á fimmtudag og föstudag,” sagði Aðalsteinn Rúnar.
Páll Jónsson hélt á ný til veiða í gærkvöldi og Sighvatur heldur til veiða í dag.