Sighvatur GK á útleið frá Grindavík í hörkubrælu. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Línuskipið Páll Jónsson GK landaði í Grindavík á mánudaginn og í dag eru þar að landa línuskipið Sighvatur GK og ísfisktogarinn Jóhanna Gísladóttir GK. Benedikt Jónsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, sagði að þeir hefðu komið með fullt skip. “Við fengum allan okkar afla í fjórum lögnum á Meðallandsbugtinni. Um helmingur aflans var þorskur en síðan var þetta mest ýsa og langa. Þorskurinn var afskaplega stór og fallegur. Meðalvigtin á honum var á milli fimm og sex kíló. Þetta var sannkallaður stórþorskur. Það var kaldaskítur í upphafi túrs en síðan var þokkalegt veður,” sagði Benedikt.

Sighvatur er að landa í dag og er aflinn um 100 tonn. Óli Björn Björgvinsson skipstjóri sagði að aflinn hefði fengist í sex lögnum. ”Við byrjuðum á Skerjunum en þar var heldur lítið að hafa. Síðan var ein lögn tekin við Reykjanes, þá tvær á Eldeyjarbanka og loks tvær í Jökuldýpi. Meirihluti aflans var þorskur en síðan var þetta blanda af ýmsu öðru. Við hófum túrinn í þokkalegu veðri en síðan skall á skítabræla,” sagði Óli Björn.

Ísfisktogarinn Jóhanna Gísladóttir mun landa um 50 tonnum í Grindavík í dag en skipið kemur til löndunar vegna veðurs. Jóhanna var að veiðum í Breiðamerkurdýpi, á Síðugrunni og á Selvogsbankanum.