
Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, línuskip Vísis, lönduðu bæði í vikunni sem er að líða. Páll Jónsson landaði í heimahöfn í Grindavík á mánudag en Sighvatur á Djúpavogi í gær. Heimasíðan ræddi við skipstjórana um veiðarnar.
Jónas Ingi Sigurðsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, sagði að aflinn hefði verið rúm 80 tonn og hann hefði fengist í tæplega sex lögnum. “Við vorum að veiðum á Eldeyjarbankanum og það fengust frá 10 og upp í 16 tonn í lögn. Um 40% aflans var þorskur en síðan var þetta ýsa og langa. Allan túrinn var bölvuð kaldafýla. Hægt er að segja að þetta hafi sloppið en því fer fjarri að þarna hafi verið mikið fjör hvað veiðina varðar. Veiðarnar mættu alveg hressast á þessum slóðum. En auðvitað bera menn sig vel enda jól á næsta leiti,” sagði Jónas Ingi.
Óli Björn Björgvinsson, skipstjóri á Sighvati, sagði að túrinn hefði verið erfiður hvað veðurfar varðar. ”Við vorum að veiðum fyrir sunnan Hornafjörð í hundleiðinlegu veðri. Það voru 15 – 25 metrar allan túrinn og stærsti straumur. Á leið til löndunar á Djúpavogi var arfavitlaust veður á móti. Við vorum rúma tíu tíma að fara 42 – 43 mílur. Aflinn var 103 tonn sem fékkst í fimm lögnum. Það voru um 20 tonn í hverri lögn. Þetta var mest þorskur og ýsa. Það má því segja að túrinn hafi verið erfiður vegna veðurs en hann gekk nokkuð vel hvað aflabrögð varðar. Annars eru menn brattir hér um borð enda einungis einn túr eftir fyrir jól,” sagði Óli Björn.