Bergey VE og Vestmannaey VE í höfn í Neskaupstað í gær. Ljósm. Smári Geirsson

Eyjaskipin Bergey VE og Vestmannaey VE hafa að undanförnu landað tvisvar í viku í Neskaupstað. Afli skipanna fer að mestu til vinnslu hjá Vísi í Grindavík. Skipin komu bæði til löndunar í gær og voru hvort um sig með um 60 tonna afla. Heimasíðan heyrði hljóðið í skipstjórunum.

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, var ánægður með aflabrögðin. ”Það fiskaðist ágætlega í þessum stutta túr, í reyndinni mun betur en ég átti von á. Við fórum út á sunnudagskvöld og sigldum beinustu leið norður á Vopnafjarðargrunn. Þar reyndist vera þorskreytingur og dálítil ýsa með. Við héldum síðan norður á Glettinganesflak í leit að meiri ýsu en þar reyndist aflinn einnig vera þorskur að meirihluta. Þorskurinn er hérna fyrir austan að elta síldina og það er talsvert af honum en minna af ýsunni. Það var fræsingur í veðrinu í túrnum, sperringur að norðan og norðvestan,” sagði Jón.

Birgir þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, hafði svipaða sögu að segja. ”Við byrjuðum túrinn í suðurkantinum á Digranesflakinu og vorum þar í rúman sólarhring. Síðan var keyrt á Glettinganesflakið. Það var alls staðar reytingur en aflinn var mest þorskur. Við fórum út í góðu veðri en síðan var veðrið heldur leiðinlegt. Ég geri ráð fyrir að við verðum eitthvað áfram að veiðum hér fyrir austan,” sagði Birgir Þór.