Gullver NS kemur til löndunar. Ljósm. Ómar Bogason

Ísfisktogarinn Gullver NS landaði 106 tonnum á Seyðisfirði í gærmorgun. Uppistaða aflans var þorskur og ýsa. Þórhallur Jónsson skipstjóri segir að drullubræla hafi verið alla veiðiferðina. „Við vorum að veiðum við Herðablaðið eða ofan við Reyðarfjarðardýpið. Það aflaðist ágætlega en veiðiferðin tók eina þrjá sólarhringa. Eftir hádegi á sunnudag var orðið vitlaust veður og þá var farið í land. Það er búin að vera mikil brælutíð í janúar og það sem af er febrúar. Þetta eru langar og leiðinlegar brælur og þreytandi tíðarfar,“ segir Þórhallur.

Gullver heldur á ný til veiða í kvöld.