Börkur NK landaði 880 tonnum af makríl um helgina. Ljósm. Smári Geirsson

Börkur NK kom til Neskaupstaðar á laugardaginn með 880 tonn af makríl sem veiddur var í norskri lögsögu. Heimasíðan ræddi við Herbert Jónsson skipstjóra og spurði hann um veiðina. “Aflinn sem við komum með er okkar eigin og einnig frá Beiti NK. Bæði skip fengu þokkalegan afla til að byrja með en síðan dró mjög úr veiðinni. Í fyrsta holinu fengu bæði skip á milli 200 – 300 tonn en síðan var þetta óttalegur barningur og mikið leitað. Ég held að þetta sé í fyrsta sinn sem Síldarvinnsluskip veiði makríl í norskri lögsögu þannig að þetta eru tímamót hvað það snertir. Það var mikill fjöldi norskra báta á svæðinu og skipulega leitað en það fannst afskaplega lítið og það virðist ekki vera mikið af fiski á svæðinu. Nú er makrílveiðum lokið hjá okkur og kominn tími til að hyggja að síldarvertíð. Við erum ágætlega sáttir við makrílvertíðina. Kvótinn var ekki mikill en hann náðist og Beitir mun koma með síðasta farminn. Framan af vorum við í veiðisamstarfi með Beiti, Margréti EA og Vilhelm Þorsteinssyni EA en upp á síðkastið höfum við og Beitir unnið saman. Menn reiknuðu með fyrirhöfn við að ná makrílnum en það tókst og ég held að allir séu þokkalega sáttir,” sagði Herbert.

Beitir NK og Börkur NK að makrílveiðum í norskri lögsögu.
Ljósm. Ingvar Ísfeld Kristinsson