Blængur NK siglir inn Norðfjörð að loknum frábærum túr.
Ljósm. Guðlaugur Björn Birgisson

Frystitogarinn Blængur NK kom til Neskaupstaðar í morgun að loknum frábærum túr. Aflinn var 822 tonn upp úr sjó og verðmæti hans eru 660 milljónir króna. Heimasíðan ræddi stuttlega við Bjarna Ólaf Hjálmarsson skipstjóra og var hann mjög sáttur við veiðiferðina. ”Þessi veiðiferð er á meðal þeirra bestu sem við höfum upplifað á Blængi og kannski er þetta besti túrinn. Það er um að ræða 30 daga túr og verðmæti aflans er um 22 milljónir á dag. Það getur enginn verið ósáttur við túr eins og þennan – þetta er sannkallaður þrusutúr. Við vorum fyrstu tíu dagana að veiðum á suðausturmiðum en síðan var haldið á Vestfjarðamið. Það var gott veður mest allan túrinn. Við fengum einungis eina sólarhrings brælu. Í aflanum er mest af ýsu eða 330 tonn en síðan er þetta þorskur, karfi og ufsi. Við hér um borð erum kátir enda getum við ekki verið neitt annað þegar svona gengur,” sagði Bjarni Ólafur.

Blængur mun halda til veiða á ný annað kvöld.